Sumir einstaklingar eiga það til að hegða sér á óviðeigandi hátt. Þeir virðast missa tilfinninguna fyrir almennum félagslegum viðmiðum. Dæmi um það er til dæmis skortur á tillitsemi við aðra, tillitsleysi gagnvart tilfinningum og þörfum annarra og skilningsleysi á almennu velsæmi í félagsskap annarra.

Einstaklingurinn getur til dæmis komið með óviðeigandi athugasemdir eða truflað samtöl, eitthvað sem hann hefði aldrei gert fyrir greiningu.

Í þessum tilfellum áttar einstaklingurinn sig ekki á óviðeigandi hegðun sinni né hefur skilning á hvernig hegðun hans virkar á aðra.

Sumir með MS hafa bæði skerta sjúkdómsvitund og hömlulaust háttalag. Aðrir eru meðvitaðir um óviðeigandi háttalag sitt en hafa ekki tök á að stöðva óhefta hegðun sína.

Kristín pantaði símleiðis mikið af vörum sem fjölskyldan hafði ekki þörf fyrir. Skuldir hlóðust upp og bankareikningnum var lokað.

Nauðsynlegt er að ættingjar og vinir þekki einkennin til að minnka eða forðast misskilning.

Munið að þessi hegðun er vegna sjúkdómsins. Einstaklingnum er ekki sjálfrátt og ekki dugar að segja honum að hætta þessari hegðun.

Við tilteknar aðstæður getur þó stundum hjálpað að benda einstaklingnum á að háttsemi hans sé óviðeigandi.

Ekki skammast. Það hjálpar ekki og kannski verða það aðeins skammirnar sem einstaklingurinn man en ekki ástæða þeirra.

Talið um vandamálið við aðra sem þið treystið. Það gæti gert vandamálið minna viðkvæmt og auðveldara að vinna með.

Árangursríkt getur verið að ræða málin við lækni, sálfræðing eða aðra fagaðila.

Kári hagaði sér öðruvísi við matarborðið en hann var vanur. Hann hugsaði aðeins um eigin þarfir án þess að hafa hugsun eða skilning á þörfum annarra við borðið. Hann fór heldur ekki eftir almennum borðsiðum, svo sem að passa upp á að allir fengju á diskinn sinn, að taka ekki allar kjötsneiðarnar eða bíða með að fá sér aftur þar til allir hefðu fengið sér á diskinn.