Vörunúmer: 1001

Stakt framlag

Verðm/vsk
2.500 kr.
Verð
2.500 kr.

MS-félag Íslands vinnur að velferð þeirra sem haldnir eru MS-sjúkdómnum með því að veita þeim og aðstandendum þeirra stuðning og stuðla að öflugri félags- og fræðslustarfsemi. Félagið er málsvari félagsmanna gagnvart hinu opinbera og öðrum aðilum.

 

MS-félagið er á almannaheillaskrá skattsins og því geta framlög til félagsins veitt rétt á skattfrádrætti ef öll skilyrði til þess eru uppfyllt.

Einstaklingur getur fengið skattfrádrátt (lækkun á tekjuskattsstofni) allt að 350.000 kr. á ári, vegna gjafa og framlaga til MS-félagsins. Til þess að einstaklingur fái frádrátt þurfa gjafir/framlög hans á árinu að vera a.m.k. 10.000 kr. Frádráttur þessi er ekki millifæranlegur hjá hjónum/sambúðarfólki.

Frádráttur rekstraraðila getur numið 1,5% af rekstrartekjum á því ári sem gjöf er afhent eða framlag er veitt.

Nauðsynlegt er að gefa upp kennitölu í kaupferlinu til að hægt sé að standa skil á upplýsingum til skattfrádráttar.