Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Upplýsingar um HAM-námskeið Reykjalundar í síma 585 2000.
"Hugræn atferlismeðferð (HAM) hefur náð mikilli útbreiðslu undanfarin ár í tengslum við ýmsan heilsuvanda, en þó einkum þunglyndi og kvíða. Rannsóknir sýna að HAM er gagnleg aðferð til að ná og viðhalda bata í þunglyndi.
Í dag eru margir þeirrar skoðunar að fyrsta hjálp við sálrænum vanda felist í sjálfshjálp. Margar sjálfshjálparbækur hafa komið fram, en undanfarið hefur í auknum mæli verið boðið upp á hugræna atferlismeðferð þar sem nýtt er tækni veraldarvefsins. Þetta hefur skilað árangri sem gefur fyrirheit um enn frekari útbreiðslu þessarar nálgunar.
Starfsfólk geðsviðs Reykjalundar hefur þróað meðferðarhandbók í hugrænni atferlismeðferð við þunglyndi í mörg ár. Nú er þessi bók útgefin til notkunar fyrir almenning og meðferðaraðila en hún er samtímis komin inn á veraldarvefinn þar sem nálgast má texta bókarinnar og verkefni, bæði á ritformi og á hljóðskrám, sem gerir hana aðgengilega fyrir mun fleiri en áður m.a. þá sem eiga við lesblindu að stríða."
(reykjalundur.is)