Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Sumir finna lítið og sjaldan fyrir einkennum á meðan aðrir upplifa mörg og erfið einkenni og það jafnvel oft eða stöðugt. Fáir geta algjörlega samsvarað sig öðrum, þó sum einkenni geti verið eins eða svipuð. Enginn fær öll einkenni sjúkdómsins og hægt er að meðhöndla mörg MS-einkenni með góðum árangri.
Einstaklingar með MS geta upplifað einkenni sem líkjast MS-einkennum en sem eiga sér allt aðra orsök en í sjúkdómnum.
Einkenni MS geta ýmist verið líkamleg eða hugræn, sýnileg sem ósýnileg. Líkamleg og sýnileg einkenni eru flestum skiljanleg og njóta samúðar en annað gildir um ósýnileg einkenni eins og hugrænar breytingar sem ekki eru eins augljósar og oft erfiðari að takast á við.
Líkamleg einkenni geta verið erfiðleikar við gang, dofi, mikil þreyta, sjóntruflanir, breytingar á jafnvægisskyni, minni máttur, skyntruflanir, skerðing á samhæfðum hreyfingum, vöðvaspenna, spasmi og verkir.
Hugrænar breytingar geta verið erfiðleikar með minni, tal, einbeitingu og athygli og breytingar á persónuleika og háttalagi, s.s. þunglyndi, tilfinningasveiflur og minna frumkvæði.
Hægt er að fá upplýsingar og góð ráð um ýmis líkamleg einkenni hér til hliðar/neðar.
Sjá ennfremur bæklingana: