Athugið að unnið er að endurskipulagningu á fræðsluframboði.

 

Stuðningshópur fyrir nýgreinda - 26. september '24 kl. 16.30-18.00

Í stað námskeiðs fyrir nýgreinda hefur verið ákveðið að bjóða upp á stuðningshóp fyrir nýgreinda sem hittist að jafnaði einu sinni í mánuði í húsnæði félagsins að Sléttuvegi 5 í Reykjavík.

Stuðningshópurinn er opinn fyrir fólk með nýlega MS greiningu (miðað er við 0-3 ár) sem kemur saman og ræðir m.a. um viðbrögð við greiningu, áhrif á daglegt líf, helstu áskoranir og bjargráð.

Hópurinn er undir handleiðslu Helenu Unnarsdóttur félagsráðgjafa.

„Þegar maður greinist með sjúkdóm eins og MS er svo gott að hitta fólk í sömu aðstæðum og ræða málin.“

Ekki þarf að skrá sig sérstaklega, bara mæta á staðinn.

Hér er hlekkur á viðburð á FB en stuðningshópurinn hittist í fyrsta skipti nú í haust þann 26.9 kl. 16.30 - 18.00.

 

Stuðningshópur fyrir aðstandendur - 10. október '24 kl. 16.30-18.00

Í stað námskeiðs fyrir aðstandendur hefur verið ákveðið að bjóða upp á stuðningshóp fyrir aðstandendur sem hittist að jafnaði einu sinni í mánuði í húsnæði félagsins að Sléttuvegi 5 í Reykjavík.

Stuðningshópurinn er opinn fyrir aðstandendur MS fólks, maka, foreldra, uppkomin börn eða systkini. Rætt er um MS sjúkdóminn, viðbrögð við greiningu, áhrif á fjölskyldumeðlimi, daglegt líf fjölskyldu o.fl..

Hópurinn er undir handleiðslu Helenu Unnarsdóttur félagsráðgjafa.

„Virkilega gott að hitta fólk sem skilur mann og þekkir það sem maður talar um.“

Hér er hlekkur á viðburð á FB en stuðningshópurinn hittist í fyrsta skipti nú í haust þann 10.10 kl. 16.30 - 18.00

 

Námskeið

MS-félagið hefur boðið upp á ýmis námskeið fyrir MS-greinda, maka, börn og foreldra þeirra. 

Námskeiðsframboðið er í endurskoðun eins og er og ekki opið fyrir skráningar.

Námskeið verða auglýst á miðlum félagsins og þessi síða uppfærð eftir því sem tilefni er til.

 

Síða uppfærð 12. sept. '24