Jólin eru að koma

Boðið verður upp á sameiginlegan stuðningshóp fyrir nýgreinda og aðstandendur hjá MS-félaginu þann 12. desember nk. frá 16.30- 18.00.

Ætlum að eiga notalega stund saman og ræða það sem ykkur liggur á hjarta, kannski með áherslu á aðdraganda jólanna, áhyggjur, stress og fleira því tengt. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og piparkökur.

Vonumst til að sjá sem flest og eiga saman notalega stund.