Stuðningshópur fyrir aðstandendur - 10. október '24 kl. 16.30-18.00, MS-húsið, Sléttuvegi 5

 

Opinn stuðningshópur fyrir aðstandendur MS fólks, maka, foreldra, uppkomin börn eða systkini. Rætt er um MS sjúkdóminn, viðbrögð við greiningu, áhrif á fjölskyldumeðlimi, daglegt líf fjölskyldu o.fl.

Hópurinn er undir handleiðslu Helenu Unnarsdóttur félagsráðgjafa.

„Virkilega gott að hitta fólk sem skilur mann og þekkir það sem maður talar um.“

Hér er hlekkur á FB viðburð