Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
MS-félagið býður upp á stuðningsviðtöl hjá sálfræðingi.
- Hægt er að panta tíma í bókunarkerfi Noona eða á skrifstofu félagsins í síma 568 8620 eða með tölvupósti msfelag@msfelag.is
- Ef engir lausir tímar eru í bókunarkerfinu er hægt að skrá sig á biðlista á skrifstofu félagsins.
Stuðningsviðtölin standa félögum sem eru með MS og nánum aðstandendum þeirra til boða og eru endurgjaldslaus.
Viðtölin fara fram í notalegu viðtalsherbergi í MS-húsinu að Sléttuvegi 5.
Einnig er hægt að óska eftir fjarviðtali í gegnum öruggt kerfi, Kara Connect, sem er viðurkennt af bæði Landlækni og Persónuvernd. Þjónustan er því í boði fyrir félaga okkar alls staðar á landinu.
Heilbrigðisráðuneytið styrkir sálfræðiráðgjöf félagsins árið 2024.
Berglind Jóna Jensdóttir sálfræðingur
Berglind er með BS próf í sálfræði frá Háskóla Íslands og MSc í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Berglind þekkir
MS-sjúkdóminn vel, þar sem móðir hennar glímdi við síversnandi MS og Berglind greindist síðan sjálf með sjúkdóminn fyrir nokkrum árum.
Lokaverkefni Berglindar í klínískri sálfræði fjallar um starfræn taugaeinkenni og var unnið í samstarfi við starfsmenn á taugasviði Reykjalundar. Hún var jafnframt í starfsnámi á geðsviði og taugasviði Reykjalundar.
Berglind hefur brennandi áhuga á að styðja MS-fólk og aðstandendur þeirra við að takast á við þær áskoranir sem MS-sjúkdómurinn felur í sér. Hún flutti erindi á 50 ára afmælisráðstefnu MS-félagsins haustið 2018 þar sem hún fjallaði um áhrif MS á lífsgæði og andlega líðan.
Berglind hefur starfað hjá Reykjavíkurborg og þjónustað bæði fullorðna og börn. Hún starfar nú hjá Umhyggju, félagi langveikra barna, ásamt því að vinna fyrir MS-félagið.
Sigrún Ólafsdóttir Flóvenz sálfræðingur - í leyfi
Sigrún lauk Cand. psych prófi frá Háskóla Íslands árið 2008 og doktorsprófi í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2021.
Sigrún hefur víðtæka reynslu af greiningu og meðferð sálræns vanda bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Hún hefur meðal annars unnið innan réttarvörslukerfisins á Íslandi, verið deildarsálfræðingur fyrir tvær innlagnardeildar á sjúkrahúsi í Stokkhólmi, unnið á göngudeild fyrir fólk með margvíslegan geðrænan vanda, séð um sálfræðiþjónustu fyrir háskólanema og veitt sálfræðinemum í þjálfun handleiðslu.
Á undanförnum árum hefur Sigrún lagt stund á rannsóknir í sálfræði og komið að kennslu við Háskólann í Reykjavík.
Elín Broddadóttir sálfræðingur
Elín útskrifaðist með BS í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2016, MSc gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2024 og hlaut í kjölfarið starfsréttindi sem klínískur sálfræðingur. Elín leggur áherslu á hugræna atferlismeðferð (HAM) og sinnir tilfinningalegum vanda á borð við kvíða, þunglyndi, þrálát líkamleg einkenni, lágt sjálfsmat og áföll. Í námi sínu öðlaðist hún fjölbreytta reynslu á greiningar- og meðferðarvinnu bæði með ungmennum og fullorðnum. Hún var í starfsnámi hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Geðheilsumiðstöð barna og geðrofs- og samfélagsgeðteymi Landspítala.
Meistaraverkefni hennar fól í sér að árangursmeta hugræna atferlismeðferð í hóp við þrálátum líkamlegum einkennum og starfar hún enn við rannsóknir samhliða starfi sínu hjá Samskiptastöðinni. Undanfarin ár hefur Elín starfað við rannsóknir en hún hefur einnig lokið meistaranámi á félagsvísindasviði með áherslu á lýðheilsu og hnattræna heilsu.
Hægt er að bóka viðtal: