Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
MS-félagið hefur látið gera jólapakkamerki með myndum af laufabrauði, jólaketti og jólastjörnu í stíl við jólaskraut sem félagið lét hanna og er líka með til sölu.
Jólapakkamerkin eru 6 í pakka, tvö af hverri mynd, á 500 kr.
Þau eru til sölu hjá félaginu að Sléttuvegi 5 og þegar félagið er með sölubása í Kringlunni, Fjarðarkaupum og Kjarnanum í Mosfellsbæ og á jólabasar MS-Setursins. Einnig eru merkin til sölu í versluninni Líf og list í Smáralind og hjá Dagbjörtu á Akureyri, sjá lista yfir sölustaði hægra megin á forsíðu.
Félagið verður með sölubása:
Kringlan, 20. nóvember kl. 13-19, hjá Body shop
Fjarðarkaup, 21. nóvember kl. 13-18
Basar hjá MS-Setrinu, Sléttuvegi 5, 22. nóvember kl. 13-16
Kjarni Mosfellsbæ, 21. og 28. nóvember kl. 14-18
Kringlan, 27. nóvember kl. 13-19, hjá Body shop
Fjarðarkaup, 28. nóvember kl.13-18
************
Þá má minna á að félagið er einnig með jólakort Eddu Heiðrúnar frá árunum 2011-2013 til sölu. 10 kort í pakka kosta 1.000 kr.