Fimmtudaginn 12. janúar byrjar nýtt 10 vikna reiðnámskeið, þ.e. þjálfun á hestbaki.

Fyrir utan góðan félagsskap við hesta og menn, þá hjálpa hreyfingar hestsins til við að efla jafnvægi og styrkja bak- og lærvöðva sem fljótir eru að rýrna hjá okkur MS-fólki eftir því sem hægir á okkur.

Þátttakendur sem verið hafa á námskeiðunum hafa verið mjög ánægðir og finnst sem þeir hafi styrkst á líkama og sál.

 

Námskeiðið er haldið í samstafi við Fræðslunefnd fatlaðra hjá Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ. Reiðhöllin er í Mosfellsbæ við Varmárbakka, sjá staðsetningu hér.

Námskeiðið er einu sinni í viku, á fimmtudögum frá 12. janúar fram til 16. mars, klukkutíma í senn, frá 10:30-11:30.

 

Þátttakendum verður skipt í 2 hópa þar sem hver hópur er í um 30 mínútur með hestinum, þar af um 20 mínútur á baki. Um 10 mínútur fara í að fara á bak og af baki. Sjálfboðaliðar á vegum Fræðslunefndar fatlaðra hjálpa þátttakendum á og af baki. Einn aðstoðarmaður teymir hestinn og einn til tveir til viðbótar ganga með honum, allt eftir getu hvers og eins þátttakanda. Jafnvel óvanasta fólk finnur sig öruggt á baki. Hestarnir eru einstaklega gæfir og vanir að umgangast óvant fólk. Á meðan hluti hópsins er á baki njóta hinir félagsskapar hvors annars – sem er ekki síður skemmtilegt. Myndast þá þessi líka fína kaffihúsastemming.

 

 

Að öllu jöfnu fer þjálfunin fram inni í Reiðhöllinni en ef aðstæður eru góðar og þátttakandi treystir sér til er farið út. Það er þó kalt í Reiðhöllinni og því nauðsynlegt að mæta í hlýjum fatnaði.

Um námskeiðið sjá Berglind Inga Árnadóttir, reiðkennari og eigandi hestanna og Fríða Halldórsdóttir sem þekkir vel til MS-sjúkdómsins.

 

10 vikna námskeið kostar 33.000 kr. fyrir félagsmenn. Námskeiðið er dýrt í krónum talið en þegar litið er til þess hvað námskeiðið er langt þá kostar hver tími 3.300 kr. Innifalið í því er allt að þrír starfsmenn á hvern þátttakanda, hestur á fóðrum, öryggisbelti, reiðtygi og hjálmur til láns og öll aðstaða til að taka á móti fötluðum sem ófötluðum einstaklingum.

Til að koma á móts við hátt þátttökugjald býður MS-félagið þátttakendum að skipta greiðslu.

 

Skráning á msfelag@msfelag.is eða á skrifstofunni í síma 568 8620 fyrir föstudaginn 6. janúar n.k.

 

Takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðið þannig að betra er að skrá sig fyrr en síðar.

 

 

 

BB