Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Fimmtudaginn 1. maí stendur ÖBÍ fyrir 1. maí-göngu niður Laugaveginn. Gangan ber yfirskriftina "Burt með fordóma" og setur þar með baráttuna um fordómalaust samfélag – betra samfélag fyrir alla, á oddinn.
Gönguhópur ÖBÍ verður litríkur þetta árið en ÖBÍ gefur öllu göngufólki „buff“ sem er skreytt er í stíl við myndina hér til hliðar.
MS-félagið hvetur félagsmenn sína og fjölskyldu þeirra til þátttöku því sameinuð erum við sterkari í baráttunni um fordómalaust samfélag.
Dagskrá:
Hvar byrjar gangan: Á planinu við Arionbanka við Hlemm.
Hverjir mæta: Allir sem vilja fordómalaust og betra samfélag.
Klukkan hvað byrjar gangan: Mæting kl. 13 en gangan hefst kl. 13:30.
Hvert verður gengið: Niður Laugaveginn, út Bankastrætið, Austurstrætið og að Ingólfstorgi, þar sem formleg dagskrá hefst kl. 14:10.
Er hægt að fara styttri leið: Þeir sem vilja stytta sér leið geta hist við klukkuna á Lækjartorgi og slegist í hópinn þegar hann nálgast.
Öllu göngufólki verður gefið „buff“ (efnisstrokkur til að hafa á höfði eða um háls) sem verður með áletrun og marglitum táknmyndum. Táknmyndirnar vísa til fjölbreytileika samfélagsins og minnir á að fólk er allskonar. Áletrunin á buffinu segir „Burt með fordóma“ og „Betra samfélag“.
Verið er að nýta þá jákvæðu tóna sem eru í Eurovisionlagi Pollapönkaranna þar sem í textanum segir; „Burt með fordóma“.
Með því að uppræta fordóma í samfélaginu fæst betri skilningur og stuðningur við baráttumál fatlaðra. Fordómalaust samfélag er samfélag mannréttinda og velferðar þar sem fólk nýtur skilnings og stuðnings á alla vegu.
BB