Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 23. ágúst n.k. er í fullum gangi. Hægt er að fá lægra þátttökugjald með því að skrá sig tímanlega. Í fyrra skráðu 86 sig sem hlauparar eða stuðningsaðilar MS-félagsins og söfnuðu þau 1,3 milljón króna fyrir félagið. Stuðningur sem þessi er MS-félaginu ómetanlegur og kemur að góðum notum við að efla félagsstarfið og þjónustu við félagsmenn.

Rafræn skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2014 er opin hér á marathon.is til 21. ágúst nk. Fatlaðir geta einnig tekið þátt, sjá hér. Verðskrá þátttökugjalda má sjá hér.

 

 

Bergþóra Bergsdóttir