Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
500 krónur af söluverði hvers selds hljómdisks rennur til MS-félagsins.
South River Band - Allar túlkurnar
tónsprotinn.is
Fundur sem haldin var 15.nóv.2007
Á fundinum var greint frá tildrögum og tilgangi Tónsprotans og hinni nýju vefverslun með hljómdiska, www.tonsprotinn.is. Samningar við tónlistarmenn og góðgerðarsamtök voru undirritaðir með formlegum hætti og boðið var upp á nokkur stutt tónlistaratriði þar sem m.a. South River Band og Duo Nor tóku lagið. Að lokum var vefverslunin opnuð með formlegum hætti og fyrsti diskurinn keyptur á Tónsprotanum.is
Tónsprotinn er vefverslun sem tekur að sér að selja hljómdiska með vandaðri tónlist. 500 krónur af söluverði hvers selds hljómdisks renna til að styrkja félagasamtök í góðgerðastarfsemi sem sinna tilteknu málefni. Tónlistarmennirnir velja sjálfir þau félagasamtök sem þeir vilja styrkja.
South River Band völdu MS-félag Íslands og af hverjum seldum diski hjá þeim rennur 500 krónur af söluverði til MS-félagsins.
Fyrir hönd Tónsprotans ehf
Helgi Þór Ingason formaður stjórnar
Ólafur Þórðarson framkvæmdastjóri og stjórnarmaður Grétar Ingi Gréta