Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
MS-félagið býður uppá skemmtilegan fyrirlestur: Af kynslóðabilunum og öðrum bilunum í samskiptum fólks. Fyrirlesari er Þórhildur Þórhallsdóttir, framkvæmdastýra Hestamenntar og ein af leiðbeinendum Þekkingarmiðlunar. Fyrirlesturinn fjallar á gamansaman hátt um samskipti kynslóðanna. Kaffihúsastemming og veitingar í boði félagsins.
Þórhildur er, sem fyrr sagði, framkvæmdastýra Hestamenntar, sem er eina fyrirtæki landsins sem býður uppá samskipta- og liðsheildarnámskeið fyrir vinnustaði og einstaklinga þar sem hestar eru notaðir við þjálfunina. Þórhildur er einnig einn af leiðbeinendum Þekkingarmiðlunar og hefur á þeirra vegum haldið námskeið og fyrirlestra um land allt sem fjalla um þætti eins og vinnumenningu, þjónustu, starfsmannasamtöl, samskipti kynslóðanna á vinnumarkaði og margt fleira. Þórhildur er menntuð í félags - og kennslufræðum og hefur unnið við margvíslega kennslu, rekið eigin fyrirtæki og sinnt ýmsum félagsstörfum fyrir hestamannafélagið Hörð í Mosfellsbæ.
Það er hreint með ólíkindum hvað kynslóðirnar eru ólíkar. Eldgamla liðið sem fætt er fyrir 1943, mætir bara á réttum tíma, hlýðir öllum og meira að segja lögunum. Ofdekraða kynslóðin (1981-2000) nennir ekki neinu nema vera í tölvum og safna stigum, hlýðir ekki nema stundum og vill láta skutla sér. Skyndikynslóðin (1961-1980) vill helst ekki gera neitt nema dekra við ofdekruðu kynslóðina enda gerði hún hana ofdekraða með því að vera endalaust að skutla henni og hafa ofan af fyrir henni. Skyndikynslóðinni er auðvitað vorkunn enda hefur hún ekki borðað matarbita í mörg ár, nærist eingöngu á fæðubótarefnum. Ofdekruðu kynslóðinni er svo sem vorkunn líka því hún þurfti að vera í fótbolta, ballett, tónlist, handbolta, körfu, kór og hvað þetta allt hét. Hún þurfti að gera allt það sem skyndikynslóðin sjálf gat ekki fengið því eldgamla kynslóðin var alltaf að vinna, enda vinnan dyggð. Ábyrgðarlausa kynslóðin fór með allt til fjandans, eða var kannski allt farið til fjandans? En sem betur fer þá er okkar kynslóð ekki með neina vitleysu og eins og einhver sagði þá eru vitleysingarnir allir á hinni vaktinni. Ekki að furða að allt sé á niðurleið.
Skemmtikvöldið er kl. 18-19.30 og opnar húsið kl. 17.30. Kaffihúsastemming og veitingar í boði félagsins.