Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa gert samning við sex fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu um viðgerðarþjónustu vegna hjálpartækja.

 

Fyrirtækin eru:

  • Fastus ehf.
  • Icepharma hf.
  • Stoð ehf. stoðtækjasmíði
  • Títus ehf.
  • Öryggismiðstöð Íslands ehf.
  • Eirberg ehf. frá 1. september 2017

 

 Hjálpartæki SÍ

  

Verkstæðin hafa fengið aðgang að Gagnagátt SÍ til að sjá réttindi hjálpartækjanotenda tengt tæki að viðgerðarþjónustu.

Sjá upplýsingar um verkstæði á landsbyggðinni hér neðar. 

 

Kostir nýja samningsins

  • Fleiri þjónustuaðilar munu sinna viðgerðarþjónustu heldur en verið hefur.
  • Í stað opnunartíma Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ, sem aðeins var opin 5 tíma á dag, hafa notendur hjálpartækja nú aðgengi að verkstæðisþjónustu í  8 - 9 tíma á dag.
  • Boðið er upp á neyðarþjónustu með öryggisbakvakt til miðnættis við ákveðnar alvarlegar aðstæður.
  • Heimakstur hjálpartækja.
  • Vaxandi hluti hjálpartækja kemur til afgreiðslu hjá heilbrigðisstarfsmönnum í umboði SÍ í stað Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ.

 

 Hjálpartæki SÍ

 

Þjónusta fyrirtækjanna

  • Ákveðnar viðgerðir, s.s. smærri viðgerðir eins og sprungið dekk á hjólastól, framkvæmdar á meðan beðið er.
  • Viðgerð gerð svo fljótt sem auðið er hverju sinni.
  • Almennar viðgerðir unnar innan tveggja vinnudaga ef varahlutir eru fyrirliggjandi hér á landi.
  • Varahlutir afgreiddir til þeirra notenda hjálpartækja sem það vilja og geta skipt um sjálfir.
  • Hægt að fá lánstæki (göngugrindur eða handknúna staðlaða hjólastóla) hjá verkstæði þjónustufyrirtækis á meðan viðgerð stendur ef notandi á ekki annan hjólastól/aðra göngugrind.
  • Ef um stærri tæki er að ræða sem notandi getur ekki komið sjálfur með í hefðbundnum fólksbíl er hægt að óska eftir að verkstæði sæki og sendi tæki í og úr viðgerð.
  • Ef um er að ræða veggföst hjálpartæki eða hjálpartæki sem ekki er hentugt að flytja af heimili notenda s.s. sjúkrarúm, kemur viðgerðamaður heim til viðkomandi.

 

Mat á hjálpartæki og ákvörðun um nýtt hjálpartæki

Þegar til álita kemur að gera ekki við tæki, það sé of gamalt og þörf sé á endurnýjun eða breyta þurfi tæki, þá skal verkstæði hafa samband við Hjálpartækjamiðstöð SÍ sem ákveður hvort endurnýja megi hjálpartæki eða gera breytingar á því.

 

Kynning SÍ á samningunum og verkefninu, sjá hér

Nánari upplýsingar á vef SÍ, sjá hér.

 

Landsbyggðin

SÍ er einnig með samninga við verkstæði á landsbyggðinni um viðgerðarþjónustu hjálpartækja. Þau eru:

 

Ísafjörður

Rafskaut ehf, Suðurtangi 7
opið kl. 8:30 - 17:00 alla virka daga

Sími: 456 4742

Netfang: rafskaut@rafskaut.is

Sjá á korti 

 

Akureyri, Húsavík og Þórshöfn

Rafeyri ehf, Norðurtanga 5, Akureyri
opið kl. 8:30 - 17:00 alla virka daga

Sími 461 1221 / 898 9869 á Akureyri

Sími 869 2492 á Húsavík

Sími 869 0993 á Þórshöfn

Netfang: rafeyri@rafeyri.is

Sjá á korti 

 

Egilsstaðir

Rafey ehf, Miðási 11
opið kl. 8:30 - 16:00 alla virka daga

Sími 471 2013 

Netfang: rafey@rafey.is

Sjá á korti 

 

Vestmannaeyjar

Geisli ehf, Hilmisgötu 4
opið kl. 8:30 - 17:00 alla virka daga

Sími 481 3333  

Netfang: geisli@geisli.is

Sjá á korti 

 

 

Á vefsíðu MS-félagsins eru ýmsar upplýsingar er lúta að hjálpartækjum, sjá hér.

 

 

Bergþóra Bergsdóttir