Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Sigurður Sölvi Svavarsson, sjúkraþjálfari hjá Styrk, hefur sett upp dagatal með fjölbreyttum æfingum fyrir hvern dag mánaðarins.
Í júlí á ég von á því að flestir séu að taka sumarfrí og verði eitthvað á ferðalögum um landið. Notum ferðirnar til þess að skipuleggja skemmtilega hreyfingu úti í hvaða veðri sem verður í boði.
Æfingar júlí mánaðar eru flestar fyrir kvið og bak. Mikið er af mismunandi planka útgáfum sem hægt er að gera hvar og hvenær sem.
Plönkunum má bæði skipta niður í smærri einingar og svo hvet ég alla til að taka nokkrar mismunandi útgáfur í hvert skipti.
Ef þið hafið einhverjar óskir eða fyrirspurnir um æfingarpakka sendið þær þá á: sigurdur@styrkurehf.is
Sigurður Sölvi
Blöðin með æfingunum eru þrjú - tvö með fyrirfram ákveðnum æfingum, en á það þriðja getur þú sett upp þitt eigið æfingaplan.
Hér getur þú nálgast æfingaprógrammið fyrir júlí:
Plan með myndum Plan með texta Autt plan
Við minnum einnig á heimaæfingarnar frá í apríl en þær má nálgast hér Að auki hefur Sigurður Sölvi gert stutt myndbönd þar sem hann tekur fyrir nokkrar æfingar. Þau er hægt að skoða hér
Ert þú til í áskorunina?
Þú prentar æfingaplanið út, hengir það upp eða setur á áberandi stað. Á hverjum degi gerir þú æfingu dagsins – þessa fyrirfram ákveðnu eða þá sem þú ert búin að skrifa á þitt eigið æfingaplan.
Í hvítu reitina getur þú skráð þín eigin persónulegu markmið.
Í lok mánaðarins getur þú litið stolt/ur yfir mánuðinn og hlakkað til að byrja á æfingum þess næsta. Þeim verður deilt mánaðarlega á fésbókinni.
Sigurður Sölvi er annar tveggja sem sér um hina geysivinsælu hópþjálfun fyrir fólk með MS hjá Styrk, Höfðabakka 9.