Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Sigurður Sölvi Svavarsson, sjúkraþjálfari hjá Styrk, hefur sett upp dagatal með fjölbreyttum æfingum fyrir hvern dag mánaðarins.
Æfingarnar í október eru fjölbreyttar og vill Sigurður Sölvi hvetja alla til að hreyfa sig eins og þeir geta. Hann mælir með því að þeir sem geta æft heima geri það og þeir sem geti farið út að ganga geri það.
Ef þið hafið einhverjar óskir eða fyrirspurnir um æfingapakka sendið þær þá á: sigurdur@styrkurehf.is
Blöðin með æfingunum eru þrjú - tvö með fyrirfram ákveðnum æfingum, en á það þriðja getur þú sett upp þitt eigið æfingaplan.
Hér getur þú nálgast æfingaáætlun mánaðarins:
Plan með myndum Plan með texta Autt plan
Við minnum einnig á heimaæfingarnar frá í apríl en þær má nálgast hér Að auki hefur Sigurður Sölvi gert stutt myndbönd þar sem hann tekur fyrir nokkrar æfingar. Þau er hægt að skoða hér
Ert þú til í áskorunina?
Þú prentar æfingaplanið út, hengir það upp eða setur á áberandi stað. Á hverjum degi gerir þú æfingu dagsins – þessa fyrirfram ákveðnu eða þá sem þú ert búin að skrifa á þitt eigið æfingaplan.
Í hvítu reitina getur þú skráð þín eigin persónulegu markmið.
Í lok mánaðarins getur þú litið stolt/ur yfir mánuðinn og hlakkað til að byrja á æfingum þess næsta. Þeim verður deilt mánaðarlega á fésbókinni.
Sigurður Sölvi er annar tveggja sem sér um hina geysivinsælu hópþjálfun fyrir fólk með MS hjá Styrk, Höfðabakka 9.
BÓ