Elín Broddadóttir sálfræðingur mun leysa Sigrúnu Ólafsdóttur Flóvenz af fram á vor 2025, samkvæmt samningi félagsins við Samskiptastöðina.  Sigrún fer í leyfi um miðjan desember en Elín kemur til starfa snemma í nóvember.
 
Hægt er að bóka viðtal á https://noona.is/msfelagid
 
Heilbrigðisráðuneytið styrkir sálfræðiráðgjöf MS-félagsins.
 
Elín útskrifaðist með BS í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2016, MSc gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2024 og hlaut í kjölfarið starfsréttindi sem klínískur sálfræðingur. Elín leggur áherslu á hugræna atferlismeðferð (HAM) og sinnir tilfinningalegum vanda á borð við kvíða, þunglyndi, þrálát líkamleg einkenni, lágt sjálfsmat og áföll. Í námi sínu öðlaðist hún fjölbreytta reynslu á greiningar- og meðferðarvinnu bæði með ungmennum og fullorðnum. Hún var í starfsnámi hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Geðheilsumiðstöð barna og geðrofs- og samfélagsgeðteymi Landspítala.
 
Meistaraverkefni hennar fól í sér að árangursmeta hugræna atferlismeðferð í hóp við þrálátum líkamlegum einkennum og starfar hún enn við rannsóknir samhliða starfi sínu hjá Samskiptastöðinni. Undanfarin ár hefur Elín starfað við rannsóknir en hún hefur einnig lokið meistaranámi á félagsvísindasviði með áherslu á lýðheilsu og hnattræna heilsu.

 

Nánari upplýsingar um sálfræðiþjónustu félagsins er að finna hér.