Fámennt en góðmennt var á hressilegum og skemmtilegum fyrirlestri Þórhildar Þórhallsdóttur, framkvæmdastýru Hestamenntar og leiðbeinenda hjá Þekkingarmiðlun þann 22. febrúar sl. Fyrirlestur hennar fjallar á gamansaman hátt um samskipti kynslóðanna.

Áheyrendur voru á öllum aldri og fundu allir fyrir einhverri samsvörun með þeim persónum sem hún dró upp eða þekktu til fólks sem lýsingarnar pössuðu við.

Það er hreint með ólíkindum hvað kynslóðirnar eru ólíkar. Eldgamla liðið sem fætt er fyrir 1943, mætir bara á réttum tíma, hlýðir öllum og meira að segja lögunum. Ofdekraða kynslóðin (1981-2000) nennir ekki neinu nema vera í tölvum og safna stigum, hlýðir ekki nema stundum og vill láta skutla sér. Skyndikynslóðin (1961-1980) vill helst ekki gera neitt nema dekra við ofdekruðu kynslóðina enda gerði hún hana ofdekraða með því að vera endalaust að skutla henni og hafa ofan af fyrir henni. Skyndikynslóðinni er auðvitað vorkunn enda hefur hún ekki borðað matarbita í mörg ár, nærist eingöngu á fæðubótarefnum. Ofdekruðu kynslóðinni er svo sem vorkunn líka því hún þurfti að vera í fótbolta, ballett, tónlist, handbolta, körfu, kór og hvað þetta allt hét. Hún þurfti að gera allt það sem skyndikynslóðin sjálf gat ekki fengið því eldgamla kynslóðin var alltaf að vinna, enda vinnan dyggð. Ábyrgðarlausa kynslóðin fór með allt til fjandans, eða var kannski allt farið til fjandans? En sem betur fer þá er okkar kynslóð ekki með neina vitleysu og eins og einhver sagði þá eru vitleysingarnir allir á hinni vaktinni. Ekki að furða að allt sé á niðurleið !!

Hægt er að hlusta á hljóðskrá hér.

BB