Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Fræðslufundur MS-félagsins fyrir MS-fólk og aðstandendur á Akureyri og nágrenni verður haldinn laugardaginn 5. nóvember í sal Brekkuskóla við Skólastíg. Húsið opnar kl. 12:30.
Fjölbreyttir fyrirlestrar verða á dagskrá og veitingar í boði.
Frá félaginu mæta þær Berglind Guðmundsdóttir, Bergþóra Bergsdóttir og Sigurbjörg Ármannsdóttir. Gestafyrirlesari verður Sigurður Sölvi Svavarsson, sjúkraþjálfari hjá Styrk sjúkraþjálfun í Reykjavík.
Allir velkomnir, bæði fólk með MS sem og fjölskyldur þeirra og vinir.
Dagskrá:
Kl. 12:30 Hittast og njóta veitinga
Kl. 13:00 Ávarp – Berglind Guðmundsdóttir, formaður
Kl. 13:05 Fyrirlestur – Mikilvægi líkamsræktar - þjálfun í hópi
Sigurður Sölvi Svavarsson heldur erindi um mikilvægi líkamsræktar
og segir frá hópþjálfun fyrir MS-fólk hjá Styrk* sjúkraþjálfun í Reykjavík.
Sigurbjörg Ármannsdóttir segir frá reynslu sinni af
þjálfun í hópi.
Bergþóra Bergsdóttir segir frá þjálfun á hestbaki og
möguleikum til þjálfunar á Akureyri.
Kl. 14:00 Fyrirlestur – Lyf og meðferðir
Bergþóra Bergsdóttir heldur erindi um MS-lyf og hvers
er að vænta í lyfjamálum og meðferð og gefur góð ráð um
meðferðir við helstu einkennum sjúkdómsins.
Kl. 15:00 Fyrirlestur – Samskipti
Bergþóra Bergsdóttir heldur erindi um þær áskoranir sem
MS-fólk getur mætt í samskiptum við nánasta umhverfi sitt
(við börn, foreldra, vini og maka, í kynlífi, vegna barneigna
og í félagslífi).
Kl. 15:45 Umræður og fyrirspurnir
Fundarstjóri: Sigurbjörg Ármannsdóttir
Gert er ráð fyrir 10-15 mínútna hléi á milli fyrirlestra og að fundinum ljúki um kl. 16.
Eftir fundinn verða fulltrúar MS-félagsins til viðtals:
· Berglind Guðmundsdóttir um lyf, meðferðir og mataræði.
· Bergþóra Bergsdóttir um samskipti og hugræn og tilfinningatengd einkenni MS (t.d. erfiðleikar með minni, tal, einbeitingu og athygli og breytingar á persónuleika og háttalagi, s.s. þunglyndi, tilfinningasveiflur og minna frumkvæði).
· Sigurbjörg Ármannsdóttir um hjálpartæki og áskoranir vegna breytinga á daglegu lífi vegna sjúkdómsins.
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta J
*Um hópþjálfun hjá Styrk má lesa hér, um nauðsyn skynsamlegrar þjálfunar og áhrif hennar á líkama og sál má lesa hér og um árangur jafnvægisþjálfunar má lesa hér.
MS-félagið vinnur nú að því, í samvinnu við Sigurð Sölva Svavarsson, að koma af stað hópþjálfun fyrir fólk með MS á Akureyri og nágrenni, sé áhugi fyrir hendi. Þjálfunin færi fram í sjúkraþjálfunarstöðinni Eflingu á Akureyri, í umsjá Hannesar Bjarna Hannessonar.
Hjá Styrk eru nú tveir MS-hópar, skipt eftir getu einstaklinganna. Annar hópurinn æfir tvisvar í viku, hinn þrisvar í viku, klukkutíma í senn. Æfingar miða við sértæka líkamlega þjálfun í hópi með áherslu á jafnvægi, færni og úthald.
Verð er mismunandi fyrir einstaklinga en fer eftir gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands um hópþjálfun, sjá hér.
(Mynd: Gulli Hall)