Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Hefur þú áhuga á að starfa í málefnahóp Öryrkjabandalagsins?
Á aðalfundi ÖBÍ 20.-21. október 2017 verða formenn málefnahópa ÖBÍ kosnir. Nú er kallað eftir áhugasömum einstaklingum frá aðildarfélögunum til þátttöku í starfi hópanna. Hóparnir samanstanda af formanni sem kosinn er á aðalfundi og 6 fulltrúum sem tilnefndir eru af aðildarfélögum ÖBÍ, stjórn ÖBÍ velur úr þeim tilnefningum sem berast.
Málefnahóparnir eru fimm talsins og eru þeir eftirfarandi:
Af nógu er að taka og MS-félagið vill gjarnan hafa fulltrúa í fleiri en einum hóp. Ef þú hefur brennandi áhuga og svigrúm til þátttöku í málefnastarfinu máttu endilega senda okkur línu á msfelag@msfelag.is eða hafa samband við skrifstofu í síma 568-8620 og gera grein fyrir hvaða málefni þú brennur fyrir og hversvegna. MS-félagið mun svo tilnefna einn eða fleiri fulltrúa frá félaginu, en stjórn ÖBÍ tekur svo ákvörðun um val á fulltrúum í málefnahópana.
Frestur til að skila inn umsókn er fyrir lok fimmtudagsins 26. október nk.