Það er alltaf stutt í húmorinn hjá okkar fólki og oft ekki erfitt að gera létt grín af sjálfum sér og aðstæðum sínum. 

Fjórar hressar stelpur á MS Setrinu tóku sig saman á dögunum þegar þær voru við piparkökubakstur heima hjá einni og sömdu texta við lagið Glaðasti hundur í heimi og kölluðu Glaðasta öryrkja í heimi. 

Tvær - einnig hressar stelpur á MS Setrinu - bættust í leikinn síðar. Lagið Glaðasti hundur í heimi er sungið af Friðriki Dór við texta eftir Dr. Gunna. 

Stelpurnar settu textann upp á blað með gleðimyndum af sjálfum sér og heimiluðu MS-vefnum að birta. Höfundarnir kalla sig Öryrkja í felum og vona að einhverjir hafi gaman af tiltækinu J

 

Sjá hér

 

 

BB