Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Á dögunum kom Magnús Bjarnason færandi hendi þegar hann gaf MS-félaginu 1 milljón króna í minningu sonar síns, Magnúsar Magnússonar, sem dvaldi um skeið í Setrinu. Í samráði við gefanda var keyptur langþráður sturtustóll og hann gefinn Setrinu. Auk þess fjármagnar gjöfin breytingar sem gera þarf á húsnæði félagsins til að bæta aðgengi út á sólpall sem mikið er notaður af félögunum í Setrinu á góðum og sólríkum dögum.
Oddfellow-stúkan Þorkell máni, nr. 7, I.O.O.F. veitti félaginu nú fyrir jólin 300.000 kr. styrk, Oddfellow-stúkan Þorgeir, nr. 11, I.O.O.F. 150.000 kr. styrk og fyrirtækið Vélar og Skip ehf. 75.000 kr. styrk sem koma mun að góðum notum við að fjármagna þær breytingar sem nú standa yfir á húsnæði félagsins við að útbúa viðtalsherbergi svo unnt sé að taka á móti nýgreindum einstaklingum og félagsmönnum í ró og næði í notalegu umhverfi.
Nokkur systkini Hafsteins Sigurðssonar gáfu félaginu á dögunum 200.000 kr. styrk í minningu bróður síns, sem þau óskuðu eftir að nýttist til ransókna á MS og Bergþóra Bergsdóttir gaf skol- og þurrkbúnað á salerni.
BB