Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Rannsóknir hafa sýnt að reglulegar og hófstilltar æfingar séu okkur, fólki með MS, mikilvægar til að viðhalda góðri heilsu og vellíðan. Við vitum þetta flest. En það er hins vegar eitt að ætla sér og langa til en annað að framkvæma og fylgja eftir fögrum fyrirheitum.
Mikinn sjálfsaga þarf til að setja upp og framfylgja æfingaprógrammi heima hjá sér og því leita margir til sérfræðinga, t.d. sjúkraþjálfara eða á líkamsræktastöðvar.
Þjálfunin stendur í klukkustund. Hópunum er skipt upp eftir getu. Almennt má segja að hópur I sé fyrir þá einstaklinga sem ekki notast við gönguhjálpartæki og hópur II sé fyrir þá einstaklinga sem notast við gönguhjálpartæki.
Þjálfarar eru Belinda Davíðsdóttir Chenery, María Carrasco og Sigurður Sölvi Svavarsson.
Skráning og nánari upplýsingar hjá Styrk í síma 587 7750.
Um þjálfunina sjá Árni Björn Þórarinsson og Heiða Þorsteinsdóttir.
Skráning og nánari upplýsingar hjá Eflingu í síma 461 2223 eða með því að skrifa tölvupóst á arni@eflingehf.is eða heida@eflingehf.is.
Verð er mismunandi fyrir einstaklinga en fer eftir gjaldskrá SÍ um hópþjálfun, sjá hér.
Sjúkraþjálfun fellur undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands, sjá hér.
Bergþóra Bergsdóttir, fræðslufulltrúi
Hópþjálfun hjá Styrk sjúkraþjálfun, sjá hér og myndir hér
Hópþjálfun hjá Eflingu sjúkraþjálfun, sjá hér
Fjölbreyttar æfingar, sjá hér