MS-félagið hefur sl. 18 ár leigt af Brynju, Hússjóði ÖBÍ, íbúð að Sléttuvegi 9 til skammtímaútleigu fyrir félagsmenn.

Stjórn félagsins hefur nú tekið þá ákvörðun að segja íbúðinni upp frá og með mánaðarmótum febrúar-mars. Hægt verður að fá íbúðina til leigu út febrúar.

Ákvörðun stjórnar byggir aðallega á minnkandi nýtingu og miklum kostnaði. Síðast en ekki síst vantar íbúðir fyrir fatlaða einstaklinga og því vart ásættanlegt fyrir félagið að sitja á íbúð með takmarkaða notkun.

 

Áætlað er að sjúkrahótel LSH við Hringbraut opni 1. apríl. Vonandi mun sjúkrahótelið nýtast félagsmönnum okkar.

 

Ingdís Líndal, framkvæmdastjóri