Skráning er hafin á jafnvægisnámskeið sem boðið er upp á í samstarfi við Reykjalund. Leiðbeinendur eru Sif Gylfadóttir, MSc. og Andri Sigurgeirsson, MSc, sérfræðingar í taugasjúkraþjálfun á tauga- og hæfingarsviði Reykjalundar. Æfingar miða við sértæka líkamlega þjálfun í hópi með áherslu á jafnvægi, færni og úthald.

Námskeiðið hefst fimmtudaginn 4. september 2014  og stendur til 18. desember.

Boðið er upp á tíma einu sinni í viku, á fimmtudögum kl. 16 eða 17, og tíma tvisvar í viku á þriðjudögum kl. 16 og fimmtudögum kl. 16 eða 17.

Verð er 12.000 kr. fyrir tíma einu sinni í viku og 15.000 kr. fyrir tvo tíma á viku.

Skráning á skrifstofu í síma 568 8620 á milli kl. 10 og 15 eða með tölvupósti á msfelag@msfelag.is

 

Mikil ásókn hefur verið á námskeiðin á undanförnum árum og því betra að skrá sig fyrr en síðar þar sem takmarkaður fjöldi kemst að.

 

Nánari lýsing á námskeiðinu:

Þriðjudagar: Upphitun, 20 mín. stöðvaþjálfun með áherslu á úthald, 20 mín. stöðvaþjálfun með áherslu á færnimiðaða kraftþjálfun og svo teygjur og slökun í lok tímans.

Fimmtudagar: Upphitun, 35 mín. stöðvaþjálfun með sértækum æfingum á jafnvægi, stöðu, hreyfistjórn og fallviðbragði, teygjur og slökun í lok tímans.