Skráning er hafin á jafnvægisnámskeið sem boðið er upp á í samstarfi við Reykjalund. Leiðbeinendur eru Sif Gylfadóttir MSc. og Andri Sigurgeirsson MSc, sérfræðingar í taugasjúkraþjálfun á tauga- og hæfingarsviði Reykjalundar. Æfingar miða við sértæka líkamlega þjálfun í hópi með áherslu á jafnvægi, færni og úthald.

Námskeiðið hefst þriðjudaginn 6. janúar og stendur fram á vor.

Boðið er upp á tíma einu sinni í viku, á fimmtudögum kl. 16:30 og tíma tvisvar í viku á þriðjudögum kl. 16 og fimmtudögum kl. 16:30.

Verð er 12.000 kr. fyrir tíma einu sinni í viku og 15.000 kr. fyrir tvo tíma á viku.

Skráning og upplýsingar í síma 861 4587 eða með tölvupósti á bergthora@msfelag.is fyrir 5. janúar n.k. Eftir það í síma 568 8620 eða með tölvupósti á msfelag@msfelag.is.

 

Mikil ásókn hefur verið á námskeiðin á undanförnum árum og því betra að skrá sig fyrr en síðar þar sem takmarkaður fjöldi kemst að.

 

Í grein Sifjar Gylfadóttur í 1. tbl. MeginStoðar 2013 (sjá hér) segir: „Jafnvægisskerðing er einn algengur vandi sem einstaklingar með MS -sjúkdóm takast á við í daglegu lífi. Rannsóknir sýna að hægt er að hafa áhrif á heilann með þjálfun og nýta þannig aðlögunarhæfni hans til aukinnar líkamlegrar getu til athafna. S értæk líkamleg þjálfun hefur sýnt sig að skilar árangri til að viðhalda og bæta göngugetu, bæta jafnvægi og auka jafnvægisöryggi fólks með MS -sjúkdóm. MS –félagið og sjúkraþjálfarar á taugasviði Reykjalundar bjóða upp á slíka þjálfun í MS S etrinu og hafa þátttakendur verið mjög ánægðir með það framlag.“

 

Nánari lýsing á námskeiðinu:

Þriðjudagar: Upphitun, 20 mín. stöðvaþjálfun með áherslu á úthald, 20 mín. stöðvaþjálfun með áherslu á færnimiðaða kraftþjálfun og svo teygjur og slökun í lok tímans.

Fimmtudagar: Upphitun, 35 mín. stöðvaþjálfun með sértækum æfingum á jafnvægi, stöðu, hreyfistjórn og fallviðbragði, teygjur og slökun í lok tímans.

 

 

 Myndir teknar á haustönn 2012

 

 

BB