Námskeiðið hefst fimmtudaginn 5. september n.k. og stendur fram í desember. Leiðbeinendur eru sjúkraþjálfararnir Sif Gylfadóttir og Andri Sigurgeirsson.

Boðið er upp á tíma einu sinni í viku á fimmtudögum kl. 16 eða 17 og tíma tvisvar í viku á þriðjudögum kl. 16 og fimmtudögum kl. 16 eða 17.

Verð er 8.000 kr. fyrir tíma einu sinni í viku og 10.000 kr. fyrir tvo tíma á viku.

Skráning er í síma 568 8620 á milli kl. 10 og 15 eða með tölvupósti á msfelag@msfelag.is

Mikil ásókn hefur verið á námskeiðin á undanförnum árum og því betra að skrá sig fyrr en síðar þar sem takmarkaður fjöldi kemst að.

 

Nánari lýsing á námskeiðinu:

Þriðjudagar: Upphitun, 20 mín. stöðvaþjálfun með áherslu á úthald, 20 mín. stöðvaþjálfun með áherslu á færnimiðaða kraftþjálfun og svo teygjur og slökun í lok tímans.

Fimmtudagar: Upphitun, 35 mín. stöðvaþjálfun með sértækum æfingum á jafnvægi, stöðu, hreyfistjórn og fallviðbragði, teygjur og slökun í lok tímans.