Hó-hó-hó – það eru að koma jól.... Að venju stendur MS-félagið fyrir jólaballi og verður það haldið laugardaginn 10. desember n.k. kl. 14 í Safnaðarheimili Grensáskirkju. Húsið opnar kl. 13:30. 

Ingdís, skrifstofustjórinn okkar, hitti í einni fjallaferð sinni Grýlu sem lofaði að biðja einhverja jólasveina sína að koma við á jólaballinu með nammigott í poka fyrir börnin.

Í fyrra komu Askasleikir og Skyrgámur og voru þeir ótrúlega skemmtilegir. Það er aldrei að vita nema þeir komi aftur.

Guðmundur Haukur Jónsson, hjá Tónskóla Guðmundar, mun sjá um að spila jólalögin af sinni alkunnu snilld.

Veitingar fyrir börn og fullorðna.

Aðgöngumiðar, sem afhentir verða við innganginn, verða númeraðir fyrir happdrætti. Flottir vinningar í  boði.

 

Aðgangur ókeypis.

 

Látið endilega vita um þátttöku, þ.e. fjölda fullorðinna og barna, í síma 568 8620, með tölvupósti á netfangið msfelag@msfelag.is eða með skilaboðum á fésbókinni.

 

Myndir frá jólaballinu í fyrra má sjá hér.

 

 

Við hlökkum til að sjá ykkur !