MS-félagið hefur látið gera jólaskraut úr fílti með myndum af laufabrauði, jólaketti og jólastjörnu.

Jólaskrautinu er pakkað í fallega gjafapakkningu og eru 6 í pakka, tvö af hverju, á 1.500 kr.

Upplagt er að nota skrautið til að skreyta jólapakka með, hengja á greinar, nota sem servéttuhringi eða gefa í tækifærisgjöf - nú eða í jólagjöf !!

Einnig hafa verið gerðir pakkamerkimiðar með sömu þremur myndum og skrautið og kosta 6 merkimiðar í pakka 500 kr.

Jólaskrautið og pakkamerkimiðarnir eru til sölu hjá félaginu að Sléttuvegi 5 og þegar félagið er með sölubása í Kringlunni, Fjarðarkaupum, Smáralindinni og á jólabasar MS-Setursins sem verður haldinn á morgun, laugardag. Einnig fæst skrautið í verslunnni Líf og list í Smáralind og hjá Dagbjörtu á Akureyri. Sjá sölustaði listaða upp á forsíðu vefsíðunnar.

 

 

Jólakortið í ár prýðir mynd Eggerts Péturssonar, Sortulyng. 7 kort í pakka á 1.000 kr. Sjá sölustaði listaða upp á forsíðu vefsíðunnar.

 

 

 

Þá má minna á að félagið er einnig með jólakort Eddu Heiðrúnar frá árunum 2011-2013 til sölu og jólakort Tolla frá því í fyrra.