Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Fundur fyrir MS-fólk og aðstandendur verður haldinn á Akureyri n.k. laugardag, 11. október og hefst kl. 13.
Fundarboð hefur verið sent til MS-fólks á Blönduósi austur til Húsavíkur.
Frá MS-félaginu koma:
· Berglind Guðmundsdóttir, formaður
· Bergþóra Bergsdóttir
· Sigurbjörg Ármannsdóttir og
· Margrét Sigurðardóttir, félagsfræðingur en einnig mætir
· Jónína Hallsdóttir, hjúkrunarfræðingur á taugadeild LSH.
Dagskrá fundarins:
— Kynning á MS-félaginu
— MS-sjúkdómurinn
— MS-einkenni
— MS-lyf, meðferð og virkni
— Kaffihlé
— Aðlögun að MS-sjúkdómnum – stuðningur fjölskyldunnar
— Fyrirspurnir og umræður
Fundurinn verður haldinn í Íþróttahöllinni við Skólastíg, 2. hæð, gengið inn að sunnanverðu, sjá hér.
MS-fólk og aðstandendur eru hvattir til að mæta.
Föstudaginn 10. október er fundur fyrir umönnunaraðila MS-fólks; hjúkrunarfólk, sjúkraliða, sjúkraþjálfara og ófaglærða. Fundurinn verður á sama stað og laugardagsfundurinn en hefst kl. 14.
Dagskrá fundarins:
— Kynning á MS-félaginu
— MS-sjúkdómurinn
— MS-einkenni
— Kaffihlé
— Fyrirspurnir og umræður
Umönnunaraðilar MS-fólks eru hvattir til að mæta.
BB