Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Hörkulið við pökkun bæklinganna í öskjur - frá vinstri: Berglind Guðmundsdóttir, fráfarandi formaður, Ingdís Líndal, skrifstofustjóri, Sigurbjörg Ármannsdóttir, fyrrum formaður, Björg Ásta Þórðardóttir, formaður, og Berglind Ólafsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri félagsins sem leit við á skrifstofu og var drifin í vinnu :-)
Fimm síðast töldu bæklingarnir verða sendir félagsmönnum á næstunni ásamt bókamerki og tveimur kynningarkortum um MS.
Hægt er að óska eftir því að fá Upplýsingar fyrir nýgreinda með því að hringja á skrifstofu í síma 568 8620 eða nálgast bæklinginn í MS-húsið að Sléttuvegi 5.
Kynningarkortin, sem eru á stærð við greiðslukort, hafa að geyma allra helstu upplýsingar um MS-sjúkdóminn og er upplagt að dreifa þeim meðal fjölskyldu og vina. Hægt er að fá fleiri kort send með því að hringja eða nálgast þau á skrifstofu.
Fyrstu bæklingarnir verða afhentir á sumarhátíð félagsins á morgun.
Bergþóra Bergsdóttir, fræðslufulltrúi MS-félagsins, sá um útgáfu bæklinganna og Högni Sigurþórsson, grafískur hönnuður, sá um útlit þeirra og umbrot.
Slóð á bæklinganna á rafrænu formi með nánari upplýsingum um innihald þeirra má finna hér.