Laus eru 3 pláss á helgarnámskeið sem haldið verður dagana 15.-16. mars ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er fyrir maka fólks með MS og byggist á fræðslu og umræðum. Tilgangurinn með námskeiðinu er að fólk í svipaðri stöðu hittist og deili reynslu sinni og fái fræðslu.

 

Fjallað verður um streitu, tilfinningar, áhrif MS á fjölskyldulífið, sjúkdóminn, slökun og fleira. Í lok námskeiðs er hægt að stofna sjálfshjálparhóp sé vilji fyrir því. Miðað er við að þátttakendur séu 6 til 8.

 

Sigríður Anna Einarsdóttir félagsráðgjafi og fjölskyldu- og hjónaráðgjafi

hefur umsjón með námskeiðinu. Fleira fagfólk kemur einnig að námskeiðinu.

 

Námskeiðið verður haldið föstudaginn 15. mars kl. 17:00-20:00 og laugardaginn 16. mars kl. 9:00-15:00 í MS-heimilinu að Sléttuvegi 5.

 

Verð er 3.500 kr. Þeir sem búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um ferðastyrk til félagsins.

 

Skráning og allar nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 568 8620 eða á msfelag@msfelag.is.