Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Föstudaginn n.k., 10. október kl. 13-17, heldur Heilaheill málþing um málstol á Hótel Sögu í salnum „Snæfell“. Málþingið er öllum opið og er aðgangur ókeypis. Yfirskrift fundarins er „Rjúfum einangrun einstaklingsins“. Búast má við áhugaverðum erindum en talerfiðleikar eru mörgu MS-fólki ekki með öllu ókunnir. Í byrjun fundarins verður MS-félagið með kynningu á félaginu og sjúkdómnum og í lok fundarins er óskað eftir því að þátttakendur frá félaginu taki þátt í umræðum.
Dagskrá:
13:00-13:10 Formaður HEILAHEILLA, Þórir Steingrímsson setur þingið
13:10-13:35 Anna Lilja Gunnarsóttir, ráðuneytisstjóri velferðarráðuneytisins
13:35-14.00 Margrét Kristjánsdóttir, deildarstjóri Sjúkratrygginga Íslands
14:00-14:15 Axel Jespersen, aðstandandi málstolssjúklings
14:15-14:45 Kaffihlé
14:45-16:20 Félögin taka til máls
16:20-17:00 Hópar taka til starfa og skila af sér
Samkvæmt dagskránni er gert ráð fyrir að hvert félag hafi sitt umræðuborð og við það geta allir sest sem hafa áhuga á málefninu og rætt um hvað betur mætti fara. Björg Ásta Þórðardóttir, í stjórn MS-félagsins, mun mæta á fundinn fyrir hönd félagsins. Umræðuborðið verður merkt með hinu nýja merki félagsins. Björg Ásta hvetur MS-fólk og aðstandendur þeirra til að mæta og sitja með henni við borðið.
HEILAHEILL er aðili að Nordisk Afasiråd. Á þessu ári er ráðið 20 ára og ætla öll aðildarlöndin að vera með uppákomu í hverju landi fyrir sig á þessum degi í nokkrar klukkustundir.
HEILAHEILL stendur sig vel í því!
BB