Sjúkratryggingar Íslands tilkynntu í dag að greiðsluþátttaka í MS-lyfinu Gilenya hafi verið samþykkt, en óskað hafði verið eftir flýtimeðferð á afgreiðslu umsóknar um innleiðingu lyfsins þann 28. júní sl.

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og Landspítali – háskólasjúkrahús (LSH) sendu í dag frá sér svo hljóðandi fréttatilkynningu:

Greiðsluþátttaka í MS lyfinu Gilenya hefur verið samþykkt, en LSH óskaði eftir flýtimeðferð á afgreiðslu umsóknar um innleiðingu lyfsins þann 28. júní sl.

Ákveðið hefur verið að Gilenya-meðferð verði veitt þeim MS sjúklingum sem hafa nú þegar reynt MS-lyfið Tysabri og orðið að hætta notkun þess. Fyrst og fremst er um að ræða þá sem hafa mótefni gegn JC-veiru í blóði og eru í aukinni hættu á að fá PML-heilabólgu samfara áframhaldandi notkun lyfsins. Einnig hefur verið ákveðið að Gilenya-meðferð verði veitt þeim MS-sjúklingum sem eiga eftir að greinast með alvarlegustu einkenni MS-sjúkdómsins.
Ofangreind skilyrði fyrir notkun Gilenya taka mið af leiðbeiningum NICE (National Institute of Health and Clinical Excellence) í Bretlandi og klínískum leiðbeiningum annarra Norðurlanda sem íslensk heilbrigðisyfirvöld vilja helst miða sig við til að tryggja réttláta og hagkvæma heilbrigðisþjónustu.

Þar sem Gilenya er afar vandmeðfarið lyf mun meðferð með því verða undir ströngu eftirliti hjá LSH með sérstakri vöktun sjúklinga, ekki síst í upphafi meðferðar.

Gert er ráð fyrir að ársmeðferð með Gilenya kosti um 3,7 milljónir kr. fyrir hvern sjúkling eftir að afsláttur fékkst frá seljandanum. Greiðsluþátttaka í lyfinu er samþykkt með því skilyrði að kostnaðurinn haldist áfram sambærilegur eða lægri en vegna eldri meðferða.

Í byrjun munu 5-10 sjúklingar hefja meðferð á Gilenya, en áætlað er að fljótlega muni 20-25 bætast í hópinn. SÍ og LSH stefna í framhaldi að heildarendurskoðun og samræmingu klínískra leiðbeininga vegna MS-lyfja. Gert er ráð fyrir að þeirri endurskoðun verði lokið um næstu áramót. Næsta endurskoðun er síðan áætluð að þremur árum liðnum, nema nýjar upplýsingar komi fram sem gera nauðsynlegt að flýta henni.

Berglind Guðmundsdóttir formaður MS-félags Íslands sagði m.a. í samtali við fréttavefinn Vísi.is í dag að “þessi ákvörðun um að ríkið taki þátt í kostnaðinum við Gilenya skipti fólkið miklu máli. „Það gerir það því fólk var ekki bara farið að versna líkamlega heldur var þetta líka mikið álag andlega”.

Hér eru tenglar á umfjöllun fjölmiðla:


Nýtt MS lyf samþykkt
Sjúklingar gleðjast yfir ákvörðun yfirvalda
Samþykkt að greiða MS lyf
Ánægð með flýtimeðferð
MS félagið fagnar nýja lyfinu