06.03.2013
Blað MS-félags Íslands, MeginStoð, er komið út. Í blaðinu er að finna margar mjög áhugaverðar greinar um margvísleg málefni. MS-félagið fagnar 45 ára afmæli á þessu ári og er blaðið því einstaklega veglegt.
Meðal efnis í blaðinu:
- Upplistun og lýsing á námskeiðum sem eru í boði
- Ávarp formanns á tímamótum
- Um nytsemi vefmiðla eftir Mörtu Bjarnadóttur
- Viðtal við dugnaðarkonuna Önnu Sigríði Sigurjónsdóttur sem vill allt fyrir MS-fólk gera
- Útskýring á forljótum ananas á kaffihúsinu Amokka frá Lonni B.H. Sigurbjörnsdóttur og Steinunni Þ. Árnadóttur
- Fréttir af norrænum vettvangi eftir Heiðu Björgu Hilmisdóttur
- Viðtal við gæðakonurnar Bryndísi Arnfinnsdóttur matráð og Auði Þ. Marinósdóttur sjúkraliða sem hafa starfað á dagvist MS-félagsins nánast frá upphafi
- Listakonan Gerður Gunnarsdóttir segir sögu myndverksins Stoðar sem er eitt af helstu kennimerkjum MS-félagsins
- Yfirgripsmikil grein dr. Sóleyjar Þráinsdóttur taugalæknis um lyfjamál og stöðu MS-fólks á vormánuðum 2013
- Grein Margrétar Bárðadóttur sérfræðings í klínískri sálfræði um streitu og hvernig rækta megi núvitundina til að ná jafnvægi í lífinu
- Grein Margrétar Sigurðardóttur félagsráðgjafa MS-félagsins um fjölskylduna og aðlögun að MS
- Grein Sifjar Gylfadóttur sjúkraþjálfara á Reykjalundi um sértæka líkamlega þjálfun MS-fólks en Sif hefur um árabil séð um jafnvægis- og styrktarþjálfun í MS-heimilinu
- Fréttir af Norðanmönnum eftir Jón Ragnarsson
Blaðið er komið í póstdreifingu til félagsmanna en það má einnig nálgast á pdf-formi hér
Bergþóra Bergsdóttir