Stjórn Menningarsjóðs VISA úthlutar nú 9 styrkjum, samtals að fjárhæð 14 milljónir króna. Þetta er í ellefta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum og hafa 79 styrkir verið veittir frá upphafi, flestir til menningarmála en nokkrir til vísinda-, mannúðar- og líknarmála. Stjórn sjóðsins ákvað að í ár skyldi verulegum hluta styrkfjárhæðarinnar varið til menningar-, líknar- og velferðarmála.

Tvenn félagasamtök fengu 2 milljónir hvort.

MS-félagið, til húsbyggingar eða annarra mála. Markmið félagsins er að vinna að velferð þeirra sem haldnir eru MS-sjúkdómnum.