MS-félagið tók í dag við 20 milljóna króna styrk úr Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur, en styrkinn á að nýta í viðbyggingu við MS-heimilið að Sléttuvegi 5 í Reykjavík.

MS-heimilið gegnir mikilvægu hlutverki sem miðstöð fyrir fólk með MS-sjúkdóminn og þangað sækja yfir 70 einstaklingar þjónustu í viku hverri. Með viðbyggingunni getur félagið enn betur sinnt því hlutverki að veita MS-fólki nauðsynlega þjónustu, s.s. sjúkra- og iðjuþjálfun, hjúkrun, læknisþjónustu, félagsráðgjöf og almenna aðhlynningu. Þá opnast einnig möguleikar á að veita aukna þjónustu, t.d. á sviði jógaiðkunar, heilsuræktar og almennrar félagsstarfsemi, en slík þjónusta er ekki síður nauðsynleg til að stuðla að bættum lífsgæðum þeirra sem lifa með MS-sjúkdómnum.

Sigurbjörg Ármannsdóttir, formaður MS-félagsins, og Þóra Hallgrímsson, móðir Margrétar Björgólfsdóttur, rituðu undir samning um styrkveitinguna á blaðamannafundi í dag.

Við undirskrift samningsÞessi höfðinglegi styrkur sjóðsins gerir MS-félaginu kleift að hefja framkvæmdir við viðbygginguna mun fyrr en ella. Að lokinni undirritun tók Þóra Hallgrímsson fyrstu skóflustungu að viðbyggingunni, sem verður um 179 fermetrar. Við hönnun hússins árið 1991 var gert ráð fyrir að það yrði byggt í þremur áföngum og viðbyggingin sem í dag var hafist handa við að reisa er þriðji og síðasti áfanginn. Áætlað er að heildarkostnaður við hana nemi 45 milljónum króna.

Minningarsjóður Margrétar Björgólfsdóttur var stofnaður fyrir um tveimur árum af hjónunum Þóru Hallgrímsson og Bjórgólfi Guðmundssyni í minningu dóttur þeirra sem lést af slysförum fyrir rúmum 17 árum. Sjóðurinn hefur úthlutað fjórum sinnum samtals 710 styrkjum að fjárhæð 260 milljónir króna.

Meðfylgjandi eru myndir frá undirritun í dag og frá því fyrsta skóflustungan var tekin.


Nánari upplýsingar veita Sigurbjörg Ármannsdóttir, formaður MS-félagsins, í síma 892 2177 eða Þuríður Sigurðardóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri hjá MS-félaginu, í síma 663-0469.