Meðal efnis í blaðinu eru greinar eftir Ólaf Thorarensen barnalækni, sérfræðing í heila- og taugasjúkdómum barna um MS í börnum og Ólöfu Elíasdóttur, taugalækni við Sahlgrenska í Gautaborg um algengi MS á Íslandi.

Sagt er frá ráðstefnu norrænu MS-félaganna í Osló og aðkomu unga fólksins okkar að fundinum en þrjú fóru á ráðstefnuna frá MS-félaginu.

Að auki eru í blaðinu viðtöl við Ingdísi Líndal og Bergþóru Bergsdóttur, kynning á sálfræðiþjónustu sem félagið býður nú upp á til reynslu, pistill Ingibjargar Snorra frá Ísafirði og sagt frá MS-ráðstefnunni 2018.

Rúsínan í pylsuendanum er verðlaunakrossgáta.

 

Nálgast má MS-blaðið á rafrænu formi hér

 

Efnisyfirlit:

  • Þjónusta MS-félagsins
  • Frá formanni
  • Félagsstarf á vorönn
  • Námskeið á vorönn
  • Styrkir til náms
  • Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
  • Sálfræðiþjónusta
  • Vörur til sölu til styrktar þjónustu við félagsmenn
  • Styrkir til félagsins og þakkir
  • Framkvæmdir á Sléttuvegi 5
  • Alltaf mikið að gerast hjá MS-félaginu
  • Er MS í börnum sami sjúkdómur og MS í fullorðnum?
  • Algengi MS-sjúkdómsins á Íslandi
  • Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalagsins 2018
  • Ráðstefna NMSR í Osló
  • Frábærlega vel heppnuð MS-ráðstefna í tilefni 50 ára afmælis
  • Verðlaunakrossgáta

 

 

BB