Máttleysi er algengt MS-einkenni. Máttleysið getur verið íþyngjandi en einnig það vægt að einstaklingurinn finnur einungis fyrir vægri klaufsku í hendi/höndum eða fyrir máttleysi í fæti/fótum við áreynslu.

Við meira máttleysi/lömun verður oft vart aukinnar vöðvaspennu, sem getur haft mjög truflandi áhrif á hreyfingar.

 

Máttminnkun í fæti eða báðum fótum getur valdið vandræðum með gang og jafnvægi sem eykur fallhættu.

Máttminnkun í bol líkamans (búk) getur valdið erfiðleikum með rétta líkamsstöðu og þarmastarfsemi.

 

Rétt er að hafa í huga að þættir eins og sýkingar, vökvaskortur, rangt mataræði eða of mikil áreynsla, jafnvel almennt álag og þunglyndi, getur orsakað þreytu, slappleika eða jafnvel máttleysiSvefntruflanir og MS-þreyta geta einnig haft áhrif á máttleysi. Þetta getur orsakað að fyrr tilkomnir erfiðleikar við til dæmis gang eða lömun í fótum eða klaufska í höndum getur aukist. Þegar svona er ástatt er ekki um eiginlegt MS-kast að ræða enda ganga einkennin til baka þegar sýkingin eða hinir þættirnir eru að baki.

 

Ástæður máttleysis:

Ástæður máttleysis geta verið tvenns konar; bein afleiðing MS eða óbein.

Skemmdir á taugum hægja á og trufla taugaboð sem gerir það erfiðara að hreyfa vöðva en líkamlegt form einstaklingsins segir mikið til um óbeinu áhrifin. Ef formið er eða hefur verið lélegt getur það aukið máttleysið. Ónotaðir eða lítt notaðir vöðvar verða sífellt veikari en hægt er að koma í veg fyrir það með æfingum og því að vera eins virkur og hægt er.

 

Meðferð og góð ráð:

Máttleysi hefur áhrif á jafnvægi og göngu og því er nauðsynlegt að vinna á móti einkennum eins og mögulegt er, til dæmis með æfingum. Mælt er með því að byggja sig upp jafnt og þétt með reglubundnum líkamsæfingum í stað þess að taka hressilega á því stöku sinnum.

  • Sjúkraþjálfarar geta greint vandann ásamt því að veita upplýsingar og gefa góð ráð um æfingar, líkamsstöðu og hjálpartæki. Styrktarþjálfun og jafnvægisæfingar eru árangursríkar en mikilvægt er að halda líkamlegum styrk eins og unnt er. Þjónusta sjúkraþjálfara fellur undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands, sjá hér.
  • Til eru ökklaspelkur til stuðnings, auk gönguhjálpartækja, s.s. göngustafir, hækjur eða göngugrindur. Einnig hjálpartæki til að setja upp á heimilum, eins og handföng, baðbekkir eða baðstólar, eða á vinnustað. Einnig smáhjálpartæki í eldhús og fyrir bað. Mörg þessara hjálpartækja eru niðurgreidd að hluta eða öllu leyti. Sjá upplýsingar um verslanir með hjálpartæki hér.
  • Einhverjir gætu þurft að íhuga að hætta að keyra bíl. Ferðaþjónusta stendur mörgum til boða.
  • Forgangsraðaðu verkefnum til að spara orku.
  • Sum lyf geta dregið úr þreytu, spasma og verkjum en á móti geta aukaverkanir valdið (meira) máttleysi og aukið fallhættu. Spurning er þá hvort hægt sé að breyta um lyfjategund.
  • Athugaðu hvort eitthvað í umhverfi þínu getur truflað göngu eða verið þér hættulegt, eins og lausar mottur og bleyta.
  • Flýttu þér hægt!

 

Talaðu um einkenni þín við aðra einstaklinga með MS. Þú ert ekki ein/n um að finna fyrir máttleysi. Það er ótrúlegt hvað margir luma á góðum ráðum.

 

Góð ráð frá MS-fólki:

  • Ekki hika við að nota hjálpartæki. Það er ekkert spaug að detta og kannski beinbrotna.

 

Lumir þú á fleiri góðum ráðum um hvernig takast megi á við máttleysi, endilega deildu þeim með öðrum með því að skrifa okkur hér (þarf ekki að vera undir nafni).

 

Góðu ráðin verða birt og varðveitt hér – aðgengileg og öllum til góðs. 

 

Bergþóra Bergsdóttir, fræðslufulltrúi

 

Fróðleiksmolar:

  • Styrktarþjálfun

Hjá Styrk, sjúkraþjálfun, miða æfingar að því að efla styrk, færni, jafnvægi og úthald. Þjálfunin fer fram í tveimur hópum sem miða við getu og færni einstaklinganna. Þjálfunin er þó einstaklingsmiðuð.

Mjög góð aðstaða er hjá Styrk, bæði til hópþjálfunar og æfinga í tækjasal. Öllum er frjálst að koma og taka prufutíma eða fylgjast með. Æfingarnar þykja mikil áskorun, einstaklega fjölbreyttar og skemmtilegar. Enginn tími er eins. Sjá nánar hér og myndir hér og hér

 

 

Mynd