MS-félagið hefur til leigu 2ja herbergja íbúð að Sléttuvegi 9 í Reykjavík fyrir félagsmenn sína og fjölskyldur þeirra. Íbúðin hefur aðallega verið nýtt af MS-fólki sem býr á landsbyggðinni eða erlendis en svefnpláss er fyrir fjóra. 

Hægt er að leigja íbúðina í einn sólarhring eða lengur. Leiguverði er haldið í lámarki.

Íbúðin er á 2. hæð í lyftuhúsi og er mjög aðgengileg fyrir fatlaða.

Í svefnherberginu eru tvö stök rúm, þar af er annað mjög gott sjúkrarúm sem hægt er að hækka og lækka. Þá er góður svefnsófi í stofu sem rúmar tvo. Að auki er sjónvarp í stofu, ágætlega búið eldhús, eldhúskrókur og stórt baðherbergi með sturtu og sturtustól.

Sængur og koddar eru fyrir fjóra. Hægt er að fá rúmföt og handklæði leigð hjá félaginu.

 

Leiguverð:

MS-fólk - 3.500 kr. pr. sólarhring.

Aðrir - 10.000 kr. pr. sólarhring.

Leiga á rúmfötum og handklæði er 2.000 kr. pr. sett.

 

Nánari upplýsingar og bókanir á skrifstofu félagsins í síma 568 8620.

Sjá hér

 

Við biðjum alla að ganga vel um íbúðina okkar. Góð umgengni hjálpar til við að halda kostnaði í lágmarki. Vinsamlega látið vita ef eitthvað skemmist eða bilar. 

 

Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr í íbúðinni, hvorki í lengri eða skemmri tíma.  

Reykingar eru stranglega bannaðar í íbúðinni.  

Leigutaki skal sjá um þrif á íbúðinni og skila henni í sama ástandi og hann tók við henni.

Þurfi leigjandi á heimaþjónustu eða heimahjúkrun að halda á meðan hann dvelur í íbúðinni, þarf leigjandinn sjálfur að ganga frá því áður en hann kemur í íbúðina.

Sótt er um heimaþjónustu hjá Þórdísi Lindu Guðmundsdóttur í Þjónustumiðstöð Laugardals- og Háaleitis, Síðumúla 39, í síma 411 1500.

Sótt er um heimahjúkrun hjá móttökuteymi Heimaþjónustu Reykjavíkur í síma 411 9600.