Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Á grundvelli umsagnar sérfræðinganefndarinnar mun Lyfjastofnun Evrópu (EMA) taka ákvörðun á næstu mánuðum um hvort lyfið fái markaðsleyfi í Evrópu, og þar með á Íslandi.
Ocrevus er fyrsta lyfið sem gagnast við stöðugri versnun MS (e. primary progressive) og því algjör bylting.
Ocrevus verður gefið í æð, 600 mg, á 6 mánaða fresti. Fyrsta gjöfin verður þó með tveggja vikna millibili, 300 mg í hvort skipti.
Algengustu aukaverkanir þeirra sem fengu Ocrevus í rannsóknum á lyfinu voru innrennslisviðbrögð (viðbrögð við inngjöf lyfsins), sýkingar í efri öndunarvegi og herpes í munni. Einkennin voru að mestu væg til miðlungs alvarlegar.
Nánar um meðferð og aukaverkanir þegar markaðsleyfi á Íslandi liggur fyrir.
Fasa-III rannsókn (Oratorio) var gerð á 732 einstaklingum með stöðuga versnun MS. Hluti hópsins fékk Ocrevus og hluti lyfleysu til samanburðar.
Niðurstöður sýndu að meðferð með Ocrevus minnkaði hættu á skerðingu eða fötlun um 24% yfir 12 vikna tímabil og minnkaði sjúkdómsvirkni í heila (MS-skemmdir).
Rannsóknarniðurstöður má sjá hér.
Tvær fasa-III rannsóknir (Opera I og Opera II) voru gerðar samhliða á Ocrevus fyrir MS í köstum. Þátttakendur voru 1.656 manns og fékk hluti þeirra Ocrevus en aðrir MS-lyfið Rebif til samanburðar í 96 vikur eða í um tvö ár.
Helstu niðurstöður voru þær að á ársgrundvelli fækkaði köstum um rétt tæplega 50% og hætta á skerðingu eða fötlun yfir 12 vikna tímabil minnkaði um 40%. Þá minnkaði sjúkdómsvirkni í heila (MS-skemmdir) til muna.
Rannsóknarniðurstöður má sjá hér.
Heimild hér.
Bergþóra Bergsdóttir
Sjúkdómsgerðir MS, sjá hér
MS-lyf á Íslandi, sjá hér