MS er einn algengasti taugasjúkdómur sem leggst á ungt fólk. Á hverju ári greinast að jafnaði um 25 manns með MS á Íslandi, flestir á aldrinum 20-40 ára. Áætlað er að um 600 einstaklingar séu með sjúkdóminn hér á landi, eða 1,8 af hverjum 1.000 íbúum.

 

Á komandi mánuðum verða reglulega birtir hnitmiðaðir fróðleiksmolar til að auka skilning samfélagsins á MS-sjúkdómnum og einkennum hans. Það er því um að gera að deila þessum fróðleiksmolum á fésbókinni svo að sem flestir sjái.

 

MS-greining

Margir hafa upplifað MS-einkenni mörgum árum fyrir greiningu án þess að hafa gert sér grein fyrir því fyrr en litið er til baka.

Við greiningu á MS er stuðst við:

  • Skoðun taugalæknis.
  • Sjúkrasögu og einkenni.
  • Niðurstöður segulómunar (MR/MRI). – Sjá næsta fróðleiksmola.
  • Mænuvökvarannsókn sem gefur til kynna hvort um bólgu í miðtaugakerfinu sé að ræða.
  • Sjónhrifrit sem sýnir leiðnihraða taugaboða í sjóntaugum og leiðir í ljós hvort um töf á taugaboðum sé að ræða, eins og getur gerst í kjölfar sjóntaugabólgu.
  • Útilokun annarra sjúkdóma sem líkst geta MS svo sem vissra gigtarsjúkdóma, brenglaðrar starfsemi skjaldkirtils, heilaæxla, vissra sýkinga o.fl.

Til að uppfylla skilyrði MS-greiningar þarf einkenni um taugaskemmd* að koma frá a.m.k. tveimur stöðum í miðtaugakerfinu og að einkennin hafi komið fram á mismunandi tíma.

Greining getur þó byggt á einu MS-kasti** séu viss skilyrði uppfyllt á segulómun. Greining á MS getur þó aldrei byggt eingöngu á niðurstöðu segulómunar.

MS er um tvisvar til þrisvar sinnum algengari hjá konum en körlum en um orsök þess er ekki vitað.

 

*Sjá fróðleiksmolann „Hvað er MS?“ hér.

** MS-kast er þegar einstaklingur upplifir ný eða breytt einkenni sem rekja má til bólgu í miðtaugakerfi. Einkennin ganga að jafnaði til baka að hluta eða öllu leyti eftir nokkra daga eða vikur.

 


Úr bæklingnum Almennur fróðleikur. Höfundar: Bergþóra Bergsdóttir, fræðslufulltrúi MS-félagsins og Haukur Hjaltason, taugalæknir. 

 

Sjá fræðslubæklinga MS-félagsins hér.

 

Fyrri fróðleiksmoli:

Hvað er MS?