Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
MS fólk á Suðurlandi boðar til hittings 9. janúar kl. 20 í húsi Rauða krossins á Selfossi að Eyravegi 23.
Áhugi er fyrir því að koma á reglulegu hópastarfi á Suðurlandi og hvetjum við sem flest til að biðja um aðgang að facebookhópnum MS greindir á Suðurlandi þar sem hægt er að fylgjast með. Hér er hlekkur á hópinn.
Nánari upplýsingar hjá Ingu Harðardóttur s. 863 3715.
Fulltrúar frá MS-félagi Íslands munu einnig mæta til að ræða starf félagsins og áherslur á komandi misserum. Þá verður María Rúnarsdóttir, félagsráðgjafi félagsins, með erindi um virkni í daglegu lífi.
Boðið verður upp á léttar veitingar. Vonumst til að sjá sem flesta félaga á Suðurlandi.