Námskeið á vegum MS-félagsins.

Námskeið í hugrænni atferlismeðferð (HAM), 2-3 pláss laus.

Veturinn 2006-2007 stóð MS-félagið fyrir námskeiði í hugrænni atferlismeðferð.  Nú er að byrja nýtt námskeið og eru  2-3 pláss laus á námskeið sem hefst 5.des kl 17.00 í húsi MS-félagsins að Sléttuvegi 5. Tvö skipti verða  fyrir jól 5.12 og 12.12. Síðan verður hist aftur eftir jólafrí, leiðbeinandi Pétur Hauksson geðlæknir.

Áhugasamir hafi samband við Ingdísi Lindal í síma 5688620 á skrifstofu MS-félagsins.

Tilkynning

Ný þjónusta fyrir  MS-fólk.

Pétur Hauksson geðlæknir verður til viðtals fyrir MS-fólk í húsi félagsins að Sléttuvegi 5. Tímarnir verða á miðvikudögum tvisvar sinnum í mánuði. Þjónustan byrjar miðvikudaginn 5.des 2007. Tímapöntun hjá Ingdísi Lindal í síma 5688620 á skrifstofu MS-félagsins.