Námskeið fyrir nýgreinda einstaklinga með MS (6 mán. til 3 ár frá greiningu) hefst fimmtudaginn 23. mars.

 

Markmiðið með námskeiðinu er að fólk fræðist um MS, kynnist öðrum með sjúkdóminn og fái stuðning. Á dagskrá verða umræður um tilfinningaleg viðbrögð við sjúkdómsgreiningunni og áhrif MS á daglegt líf. Kynntar verða leiðir til að aðlagast breyttum aðstæðum en einnig verður leitast við að efla styrk þátttakenda (sjálfstyrking).

 

 

TÍMI: 

Mars:

·        Fimmtudagurinn 23. mars kl. 17:30 – 19:30

·        laugardagurinn 25. mars kl.10:00 – 14:00,

·        fimmtudagurinn 30. mars kl. 17:30 – 19:30

 

Apríl:

·        fimmtudagurinn 27. apríl kl. 17:30 – 19:30

 

Maí:

·        þriðjudagurinn 2. maí kl. 17:30 -19:30

 

 

STAÐUR: Sléttuvegur 5, 103 Reykjavík.

 

VERÐ: 5.000 kr. Þeir sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um ferðastyrk.

 

LÝSING: Námskeiðið er fyrir MS-fólk með tiltölulega nýja greiningu (6 mán. til 3 ár) og byggist á fræðslu og umræðum. Markmiðið með námskeiðinu er að fólk fræðist um MS, kynnist öðrum með sjúkdóminn og fái stuðning. Á dagskrá verða umræður um tilfinningaleg viðbrögð við sjúkdómsgreiningunni og áhrif MS á daglegt líf. Kynntar eru leiðir til að aðlagast betur og efla styrk þátttakenda.

 

Þátttakendur eru 6-8. Hægt er að stofna sjálfshjálparhóp í lok námskeiðsins.

 

UMSJÓN: Sigríður Anna Einarsdóttir, félags-og fjölskylduráðgjafi, sér um námskeiðið. Fleira fagfólk kemur einnig að námskeiðinu.

 

 

Skráning og allar nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 568 8620 eða með tölvupósti á msfelag@msfelag.is.