Tími: Einu sinni í viku í 6 vikur frá mánudeginum 22. september  kl. 17:30-19:30.

Staður: Sléttuvegur 5, 103 Reykjavík.

Verð: 5.000 kr. Þeir sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um ferðastyrk.

Lýsing: Námskeiðið er fyrir MS-fólk með tiltölulega nýja greiningu (6 mán. til 3 ár) og byggist á fræðslu og umræðum. Markmið námskeiðsins er að fólk fræðist um MS, kynnist öðrum með sjúkdóminn og fái stuðning. Á dagskrá verða umræður um tilfinningaleg viðbrögð við sjúkdómsgreiningunni og áhrif MS á daglegt líf. Kynntar eru leiðir til að aðlagast betur sjúkdómnum og efla styrk þátttakenda.

Þátttakendur eru 6-8. Hægt er að stofna sjálfshjálparhóp í lok námskeiðs.

Umsjón: Margrét Sigurðardóttir og Sigríður Anna Einarsdóttir, félags- og fjölskylduráðgjafar. Fleira fagfólk kemur einnig að námskeiðinu.

 

Sjá námskeiðslýsingu hér.