Námskeið fyrir einstaklinga, nýgreinda með MS, hefst 8. janúar, ef næg þátttaka næst.

 

TÍMI (með fyrirvara um breytingar):

  •    8. jan. (þriðjud.)  kl. 14:00 - 18:00 
  • 12. jan.  (laugard.) kl. 10:00 - 14:00
  • 17. jan. (fimmtud.) kl. 17:30 - 19:30
  • 24. jan. (fimmtud.) kl. 17:30 - 19:30

 

STAÐUR: Sléttuvegur 5, 103 Reykjavík.

VERÐ: 5.000 kr. Þeir sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um ferðastyrk.

LÝSING: Námskeiðið er fyrir fólk með tiltölulega nýja MS-greiningu (6 mán. til 3 ár) og byggist á fræðslu og umræðum. Markmiðið með námskeiðinu er að fólk fræðist um MS, kynnist öðrum með sjúkdóminn og fái stuðning. Á dagskrá verða umræður um tilfinningaleg viðbrögð við sjúkdómsgreiningunni og áhrif MS á daglegt líf. Kynntar eru leiðir til að aðlagast betur og efla styrk þátttakenda. Þátttakendur eru 6-8. Hægt er að stofna sjálfshjálparhóp í lok námskeiða.

UMSJÓN: Sigríður Anna Einarsdóttir, félags- og fjölskylduráðgjafi, sér um námskeiðið. Fleira fagfólk kemur einnig að námskeiðinu.

UPPLÝSINGAR: Á skrifstofu í síma 568 8620 eða með tölvupósti á msfelag@msfelag.is.

SKRÁNING: hér

 

Ítarlegar lýsingar á námskeiðum félagsins má finna hér

Upplýsingasíða fyrir nýgreinda hér.

 

 

BB

mynd