Námskeið MS-félagsins sem er fyrir MS-fólk með tiltölulega nýja greiningu (6 mán. til 3 ár), hefst þriðjudaginn 14. apríl n.k.

 

Námskeiðið er í 5 skipti á þriðjudögum, 2 klst. í senn.

 

Námskeiðið byggist á fræðslu og umræðum og er markmiðið að fólk fræðist um MS, kynnist öðrum með sjúkdóminn og fái stuðning. Á dagskrá verða umræður um tilfinningaleg viðbrögð við sjúkdómsgreiningunni og áhrif MS á daglegt líf. Kynntar eru leiðir til að aðlagast betur og efla styrk þátttakenda.

 

Umsjón með námskeiðinu og leiðsögn hafa Margrét Sigurðardóttir og Sigríður Anna Einarsdóttir, félags- og fjölskylduráðgjafar en fleira fagfólk kemur einnig að námskeiðinu.

 

Námskeiðið er haldið í MS-húsinu að Sléttuvegi 5.

 

Þátttökugjald er 5.000 kr. Þeir sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um ferðastyrk.

 

 

Skráning í síma 568 8620 á virkum dögum á milli kl. 10 og 15 eða með tölvupósti á msfelag@msfelag.is.