Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Til sölu er einstaklega fallegt borðalmanak ársins 2019 með vatnslitamyndum Eddu Heiðrúnar Backman.
Sjá má allar myndir með því að smella á bláa hnappinn hér fyrir neðan.
Almanakið er einstaklega listrænt og fallegt og því hentugt til gjafa. Á dagatalið eru merktir helstu merkisdagar ársins, auk þess sem hægt er að skrifa inn á það sér til minnis.
Almanakið kostar 2.500 kr.
Jólakort ársins, sem jafnframt er tækifæriskort, prýðir að venju mynd eftir listamann.
Nú er um að ræða vatnslitaverk Dereks K. Mundell, leiðbeinanda Eddu Heiðrúnar heitinnar, sem ber heitið Mosabrekka. Kortið hefur enga áletrun.
5 kort með umslögum kosta 1.000 kr.
Hægt er að kaupa 7 lítil kort í pakka með ýmsum myndum sem eru tilvalin með blómvendi eða litlum gjöfum til að koma stuttri kveðju til skila.
Kortin prýða myndir sem hafa verið á tækifæriskortum félagsins á undanförnum árum:
7 kort með umslögum kosta 1.500 kr.
Hægt er að fá vörurnar sendar með pósti eða nálgast þær á skrifstofu félagsins. Sími á skrifstofu er 568 8620 frá kl. 10 til kl. 15.
Ef óskað er eftir heimsendingu bætast 250 kr. við hverja einingu.
MS-félagið nýtur mjög lítilla opinberra styrkja og innheimtir mjög lágt félagsgjald svo velvild einstaklinga, félaga og fyrirtækja, m.a. með kaupum á varningi til sölu, stendur undir starfsemi og þjónustu félagsins.
Hægt er að kynna sér aðra söluvöru félagsins eða hvernig styrkja má félagið á annan hátt hér.
BB